Sterkt herðatré fyrir þung vesti og annan búnað sem viðbragðsaðilar treysta á daglega. 3D prentað úr högg- og veðurþolnu plasti, með stórum og opnum krók sem passar á flestar slár. Herðatré eru prentuð eftir pöntunum og því getur afhendingartími verið misjafn eftir álagi.
1910



Verðið ræðst af því hvort og hvar letur er prentað. Grunnform herðatrésins er alltaf það sama.
Veldu grunnlit og letur — myndin uppfærist jafnóðum. Þegar þú sendir pöntun opnast tölvupóstforritið þitt með öllum upplýsingum tilbúnum.
Allt að 6 stafir/tölustafir. Skildu eftir autt fyrir ómerkt herðatré.
Sama letur er venjulega notað og að framan, en þú mátt hafa það öðruvísi.
Litur á letri má ekki vera sá sami og grunnliturinn — sá valkostur er þá ekki í boði.
Ef sjálfvirka sendingin tekst ekki opnast tölvupóstforritið þitt sjálfkrafa í staðinn. Þú getur líka afritað pöntunina hér fyrir neðan og sent hana sjálf/ur á .
Við getum 3D prentað hluti eftir sérpöntunum. Dæmi um sérpantanir eru þjálfunar- og æfingabúnaður eða búnaður prentaður úr sérstökum efnum.
Ef fyrirtæki eða stofnanir vilja panta í magni er bent á að senda tölvupóst á thor.blo@outlook.com eða hringja í 844 7825.
Við tökum ekki á móti beiðnum er varða skotvopn eða íhluti í skotvopn. Beiðnum sem tengjast skotvopnum verður beint til lögreglu.